• Um Okkur
Hreinrás ehf. er rekið af Gunnari Erni Freyssyni og Ásgeiri Kristjánssyni. Gunnar og Ásgeir hófu störf í pípulögnum árið 2014 hjá sama fyrirtæki þar sem þeir öðluðust víðtæka reynslu í faginu. Þar komu þeir að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum, meðal annars nýlögnum í stórum íbúðarhúsum, fjölbýlum og hótelum.
Gunnar og Ásgeir eru báðir með sveinspróf en Gunnar er nú að leggja lokahönd á meistaranámið.
15+ ára reynsla
Löggiltir pípulagningamenn


Hreinrás ehf. var stofnað árið 2022 af Gunnari Erni Freyssyni. Fyrstu árin starfaði fyrirtækið aðallega sem undirverktaki fyrir önnur pípulagningafyrirtæki og vann mikið við lagnabreytingar og endurbætur á baðherbergjum.
Í ágúst 2024 gekk Ásgeir Kristjánsson til liðs við fyrirtækið sem meðeigandi og í dag sinna Gunnar og Ásgeir fjölbreyttum verkefnum á sviði pípulagninga fyrir einstaklinga, fyrirtæki og verktaka.
Þeir hafa komið að ýmsum stórum og spennandi verkefnum, meðal annars við framkvæmdir í Laugarás Lagoon, sprinklerlagnir í lagerhúsnæði í Esjumelum, þjónustuverkefni fyrir Hveragerðisbæ og Grunnskólann í Hveragerði, auk samstarfs við Baðlínuna þar sem þeir sinna lagnabreytingum og uppsetningu.
Við höfum samband við þig bráðlega.
Segðu okkur frá verkefninu og við höfum samband eins fljótt og auðið er.